{"product_id":"esprit-provence-jolailmstangir-canelle-orange-kanill-og-appelsina","title":"ESPRIT PROVENCE | Jólailmstangir | CANELLE ORANGE | Kanill og appelsína","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 1 []\"\u003eJólailmstangir með appelsínu- og kanililm\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFylltu heimilið af dásamlegum ilmi af appelsínu, kanil og hlýjum jólakryddum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eIlmurinn af appelsínu og kanil er órjúfanlegur hluti jólanna og skapar notalega jólastemningu á augabragði. Féérie Scintillante Cannelle Orange ilmstangirnar frá Esprit Provence sameina þessa klassísku jólailmi við mjúka blómatóna, hlý krydd og örlítinn sætleika. Útkoman er fágaður og notalegur ilmur sem passar fullkomlega við vetrarmánuðina.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eIlmurinn opnast með \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003eferskum og safaríkum tónum af appelsínu, kanil og appelsínublómum\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e. Í hjarta ilmsins blandast saman fjóla, kúmarín og negull sem gefa honum kryddaðan karakter. Grunntónar af vanillu og patchouli bæta við hlýju og mýkt. Útkoman er notalegur og kryddaður ilmur sem er þó hvorki of þungur né yfirþyrmandi, þökk sé ferskum sítrustónunum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eRattanstangirnar draga smám saman í sig ilmvökvann og dreifa ilminum jafnt og þétt um rýmið. Fallegri flöskunni fylgir \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003eglæsilegur jólagjafahólkur\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e, skreyttur snævi þöktu vetrarlandslagi og fíngerðum gylltum smáatriðum. Ilmstangirnar eru því bæði falleg viðbót við heimilið og tilvalin jólagjöf.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eEiginleikar:\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cul data-spread=\"false\"\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eKlassískur jólailmur af appelsínu, kanil og hlýjum kryddum\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFerskir sítrustónar í bland við hlýjan og kryddaðan grunn\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eJöfn og langvarandi ilmdreifing\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFalleg flaska með rattanstöngum\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eGlæsilegar jólagjafaumbúðir\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eNotkun:\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFjarlægið allar umbúðir og takið tappann af flöskunni. Setjið rattanstangirnar í ilmvökvann.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHægt er að stjórna styrkleika ilmsins með því að fjölga eða fækka stöngunum. Til að tryggja jafna dreifingu er mælt með því að snúa stöngunum við á 2–3 daga fresti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eVarúðarupplýsingar:\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cul data-spread=\"false\"\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eGetur valdið ofnæmisviðbrögðum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eBerist efnið á húð skal þvo hana vandlega með sápu og vatni.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEf efnið er gleypt skal leita læknisaðstoðar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eGeymið þar sem börn og dýr ná ekki til.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eForðist snertingu við augu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eForðist að vökvinn komist í beina snertingu við húsgögn, textílefni eða málaða fleti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEkki kveikja í rattanstöngunum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eAðrar upplýsingar:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFramleitt í Frakklandi.\u003c\/p\u003e","brand":"Mynja","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67834896613630,"sku":"N-OCBA","price":4290.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0605\/9196\/4414\/files\/98934_n-ocba.webp?v=1792769673","url":"https:\/\/www.mynja.is\/products\/esprit-provence-jolailmstangir-canelle-orange-kanill-og-appelsina","provider":"Mynja","version":"1.0","type":"link"}