Skilmálar

Mynja vefverslun selur skartgripi og aðrar vörur sem styðja við og draga fram fegurð hvers einstaklings.

Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur og stillum við sendingarkostnaði í höf innanlands.
Pöntunum er komið á pósthús innan tveggja virkra sólarhringa. Sé valið að sækja sendingu skal það gert í Stórholt 10 á milli klukkan 17-18  þriðjudaga og fimtudaga eða skv. nánara samkomulagi.
Í kjölfar kaupa færðu senda kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Mynju vefverslun.
Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla

Upplýsingar um seljanda:

Seljandi er Mynja vefverslun ehf., kt. 441121-0240 Stórholt 10, 603 Akureyri

Verð
Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í vefverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

Greiðslumöguleikar

Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti, Netgíró og Aur appi í vefverslun Mynju.