Vöruflokkur: TENTH MUSE
TENTH MUSE
Tenth Muse er breskt ilmvatnsmerki sem hefur endurhugsað hvernig við notum ilmvatn. Í stað hefðbundins ilmvatns í úðabrúsa eru ilmirnir í föstu formi og án alkóhóls, í fallegum og nettum umbúðum sem auðvelt er að hafa með sér hvert sem er.
Sagan á bak við Tenth Muse er persónuleg. Hugmyndin kviknaði hjá stofnandanum, Sophie Beaumont, eftir að hún fékk Covid og varð í kjölfarið viðkvæmari fyrir hefðbundnum ilmvötnum sem innihalda alkóhól. Hún fór því að leita að mildari leið til að njóta ilms og um leið vildi hún skapa ilmvatn sem væri einfalt að taka með sér og nota aftur yfir daginn.
Þannig fæddist Tenth Muse.
Nafnið á merkinu á sér líka fallega sögu. Í grískri goðafræði voru níu gyðjur innblásturs, lista og sköpunar, og hver þeirra tengdist sinni tegund listar og sköpunargáfu. Tenth Muse vísar til hinnar tíundu, nútímalegrar gyðju innblásturs, þar sem ilmur, persónuleiki og þinn eigin stíll mætast.
Ilmirnir eru bornir beint á húðina og auðvelt er að bæta við ilminn hvenær sem er yfir daginn. Litlu umbúðirnar passa fullkomlega í veskið, ferðatöskuna eða vasann, svo uppáhaldsilmurinn getur alltaf fylgt þér.
Tenth Muse snýst nefnilega um meira en að ilma vel. Ilmur getur kallað fram minningar, endurspeglað skapið og orðið hluti af þínum persónulega stíl.
Finndu ilminn þinn. Vertu þinn eigin innblástur. ✨