Upplýsingar vöru
1 af 6

Mynja

FORSALA, lendir 18-21. sept. | TENTH MUSE | ILMVATN Í FÖSTU FORMI | ITALIAN SUMMER

IS01

Fullt verð 5,290 ISK
Fullt verð Tilboðsverð 5,290 ISK
Skattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Italian Summer

Italian Summer sameinar ávaxtaríkar og jarðbundnar ilmnótur í hlýjan, líflegan og heillandi ilm. Ilmurinn fangar hinn tímalausa sjarma La Dolce Vita – hlýju, lífskraft og hreina lífsgleði. Ítalskt sumar þar sem sól, hlátur og dásamlegir bragðtónar renna saman og skapa ógleymanleg augnablik, gleði og afslöppun.

Ilmnótur

Toppnótur: Granatepli, plóma og rabarbari
Hjartanótur: Negull, bleikur pipar og guaiac-viður
Grunnnótur: Amber, patchouli og musk

Hvernig á að nota

Strjúktu fingurgómunum yfir fasta ilmvatnið til að hita það örlítið og berðu síðan á úlnliði og háls. Þegar ilmurinn klárast – eða þegar þig langar að breyta til – er auðvelt að skipta um áfyllingu í segulhylkinu og prófa nýjan ilm.

Hversu lengi endist það?

Á húð endist ilmurinn í um 6–7 klukkustundir. Hafðu hylkið í veskinu og bættu við ilmi eftir þörfum yfir daginn eða kvöldið.

Ein áfylling endist að jafnaði í um 3 mánuði miðað við notkun tvisvar á dag. Þegar hún klárast geturðu einfaldlega fyllt á með uppáhalds ilminum þínum eða prófað eitthvað nýtt.

Geymsluþol: 12 mánuðir.

Innihald

Gert úr shea-smjöri, kókosolíu, lífrænni jojobaolíu, bývaxi, E-vítamíni, ilmefnum og ilmkjarnaolíum.

INCI:
CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, CERA ALBA, PARFUM, SIMMONDSIA CHINENSIS SEED OIL, BUTYROSPERMUM PARKII BUTTER, TOCOPHEROL, HELIANTHUS ANNUUS SEED OIL