Mynja
ESPRIT PROVENCE | Jólailmkerti | CANELLE ORANGE | Kanill og appelsína
N-OCBVGat ekki hlaðið
Jólailmkerti með appelsínu- og kanililm
Logandi kerti, ilmur af appelsínum og hlýjum kryddum – Féérie Scintillante Cannelle Orange frá Esprit Provence fangar allt það besta við notaleg vetrarkvöld. Ríkulegur ilmur af sítrusávöxtum og kryddum skapar hlýlega jólastemningu á heimilinu og er fullkominn fyrir aðventuna og hátíðarnar.
Ilmurinn opnast með ferskum tónum af appelsínu, kanil og appelsínublómum. Í hjarta ilmsins blandast saman fjóla, kúmarín og negull sem gefa honum kryddaðan karakter. Grunntónar af vanillu og patchouli mýkja ilminn og gefa honum hlýjan og örlítið sætan endi.
Kertið er framleitt úr 100% jurtavaxi og kemur í fallegri appelsínugulri glerkrukku. Það er í glæsilegum gjafahólki skreyttum mynd af snævi þöktu vetrarlandslagi sem gerir það að tilvalinni jólagjöf.
Eiginleikar:
-
Klassískur jólailmur af appelsínu og kanil
-
Ferskur sítrusilmur í bland við hlý krydd
-
Hlýir ilmtónar af negul, vanillu og patchouli
-
100% jurtavax
-
Falleg og skrautleg glerkrukka
-
Kemur í hátíðlegum gjafaumbúðum
Notkun og varúðarráðstafanir:
- Geymið á dimmum stað við hitastig sem fer ekki yfir 20 gráður.
- Fjarlægið allar umbúðir áður en kertið er tendrað.
- Til að ná sem bestum árangri og tryggja að kertið brenni jafnt, skal láta vaxið bráðna þannig að það nái yfir allt yfirborðið.
- Skiljið kertið aldrei eftir eftirlitslaust þegar það logar. Geymið þar sem börn og dýr ná ekki til.
- Setjið á yfirborð sem er ekki eldfimt og forðist snertingu við efni sem geta kviknað í.
- Varúð! Ílátið verður heitt þegar kertið logar!
Nánari upplýsingar:
Framleitt í Frakklandi
Deila

